Beint í efni

Lög og reglur LMFÍ

Lög samþykkt á aðalfundi Ljósmæðrafélags Íslands 3. apríl 2025

1. Grein

HEITI FÉLAGSINS

1.1. Félagið heitir Ljósmæðrafélag Íslands, skammstafað LMFÍ og er stéttar- og fagfélag ljósmæðra og ljósmæðranema. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagssvæði er landið allt. Félagið á aðild að BHM og sjóðum BHM.

2. Grein

MARKMIÐ FÉLAGSINS

2.1. Að efla ljósmæðrastéttina, og að hvetja ljósmæður til þess að viðhalda hæfni sinni og þekkingu og stuðla að þróun ljósmóðurfræði sem fræðigreinar.

2.2 Að glæða félagslegan áhuga og samvinnu ljósmæðra bæði innan lands og í erlendu samstarfi.

2.3. Að gæta hagsmuna og réttinda ljósmæðra varðandi störf þeirra og kjör og koma fram fyrir þeirra hönd gagnvart stjórnvöldum og öðrum.

2.4. Að annast samninga um kaup og kjör kjarafélaga

2.5. Að gæta virðingar ljósmæðrastéttarinnar.

2.6. Að taka þátt í stefnumótun heilbrigðismála sem varða ljósmæðrafagið og efla samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.

3. Grein

AÐILD AÐ FÉLAGINU OG ÚRSÖGN

3.1. Allar ljósmæður sem hafa ljósmæðraleyfi á Íslandi ásamt nemum í ljósmóðurfræðum á Íslandi hafa rétt til aðildar að félaginu.

3.2. Kjarafélagi er sú ljósmóðir eða ljósmæðranemi í klínísku starfsnámi sem greiðir ákveðið hlutfall af tekjum sínum til félagsins og er bæði í kjara- og fagfélagi. Kjarafélagi hefur málfrelsi, atkvæðisrétt og kjörgengi í allar nefndir og stjórn félagsins.

3.3. Fagfélagi eru sú ljósmóðir eða ljósmóðurnemi sem ekki er kjarafélagi í LMFÍ. Fagfélagar greiða árlegt fagfélagsgjald. Fagfélagi hefur málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi í allar nefndir nema kjararáð og stjórn félagsins.

3.4. Stjórn félagsins getur gert að heiðursfélaga ljósmóður eða hvern þann velunnara félagsins sem það telur að sýna beri sérstaka viðurkenningu. Félagsmenn geta komið með tillögu að tilnefningu til stjórnar.

3.5. Aðalfundur ákvarðar félags- og fagfélagsgjöld. Heiðursfélagar eru undanþegnir félagsgjöldum. Lífeyrisþegar geta greitt hálft fagfélagsgjald og teljast þá fagfélagar.

3.6. Ljósmóður ber að sýna ábyrgð í starfi og gæta virðingar ljósmæðrastarfsins og ljósmæðrastéttarinnar. Ljósmæðrum ber að starfa eftir lögum félagsins, siðareglum og ákvörðunum aðalfunda.

3.7 Heimilt er að víkja kjarafélögum úr félaginu standi þeir ekki skilum með full iðgjöld í 3 mánuði í röð.

4. Grein

AÐALFUNDUR

4.1. Aðalfund skal halda í félaginu eigi síðar en á vormánuðum ár hvert. Dagsetning aðalfundar skal tilkynnt með sex vikna fyrirvara á heimasíðu félagsins. Almenna reglan er sú að halda aðalfund sem staðfund, en heimilt er að halda aðalfund sem fjarfund eða sem blöndu af fjar- og staðfundi. Fara kosningar þá fram með rafrænum hætti.

4.1.1. Fundarboð skal berast með tryggilegum hætti með minnst viku fyrirvara.

4.1.2. Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins minnst fjórum vikum fyrir aðalfund og skulu sendar út með aðalfundargögnum. Formlegar athugasemdir og tillögur til breytinga verða bornar undir á aðalfundi.

4.1.3. Hið sama gildir um önnur mál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi. Mál sem ekki er tilgreint á útsendri dagskrá aðalfundar verður aðeins tekið fyrir ef meiri hluti fundarmanna sé því samþykkur.

4.1.4. Viku fyrir aðalfund hið skemmsta skulu fundargögn vera aðgengileg félagsmönnum á rafrænu formi á vefsvæði félagsins, þar með talið eru skýrsla stjórnar, reikningar félagsins og sjóða á vegum þess, skýrslur endurskoðanda og skoðunarmanna og áætlanir um starfsemi og fjárhag félagsins næsta starfsár.

4.1.5. Framboð til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa skal liggja fyrir sé þess kostur.

4.1.5 Aðalfundur telst ekki lögmætur nema boðað sé til hans á löglegan hátt.

4.2. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

4.2.1. Formaður setur aðalfund og tilnefnir fundarstjóra og fundarritara.

4.2.2. Formaður félagsins flytur skýrslu stjórnar.

4.2.3. Skýrslur nefnda, ráða og fagdeilda.

4.2.4. Gjaldkeri skýrir reikninga félagsins, yfirförnum af endurskoðanda og skoðunarmönnum félagsins. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram til samþykkis og ákvörðun tekin um félagsgjald.

4.2.5. Lagabreytingar

4.2.6. Formannskosning

4.2.7. Stjórnarkosning

4.2.8. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna reikninga og eins til vara.

4.2.9. Nefndakosning - kosning í trúnaðarstörf.

4.2.10. Önnur mál.

4.3. Á aðalfundi skal bóka sérstaklega allar samþykktir og ákvarðanir. Fundaritarar ganga frá fundargerð að loknum aðalfundi. Fundargerð aðalfundar skal birt á vefsvæði félagsins ekki seinna en fjórum vikum eftir fundinn. Veittur er tveggja vikna frestur til athugasemda. Að þeim fresti liðnum telst fundargerð samþykkt og skal hún ásamt athugasemdum birt á vefsvæði félagsins.

4.4. Aukaaðalfund skal halda ef stjórn álítur þess þörf eða ef 1/3 atkvæðisbærra félagsmanna krefst þess. Hann skal boðaður með sama hætti og aðalfundur og fundarefni tilgreint í fundarboði.

5. Grein

STJÓRN FÉLAGSINS

5.. Í aðalstjórn LMFÍ skulu kosnar sex ljósmæður auk formanns. Á aðalfundi skal kjósa varaformaður, gjaldkeri, og fjóra meðstjórnendur. Hver stjórnarmaður utan formaður félagsins er kosin til tveggja ára í senn. Á fyrsta fundi eftir aðalfund velur stjórn úr hópi meðstjórnenda ritara, vararitara og varagjaldkera. Heimilt er að sitja í sama embætti í stjórn eða nefndum á vegum félagsins þrjú kjörtímabil í röð.

5.2. Formaður er launaður starfsmaður félagsins. Formann félagsins skal kjósa til þriggja ára í senn og skal framboð til formanns berast félaginu fjórum vikum fyrir boðaðan aðalfund. Formanni er heimilt að sitja þrjú kjörtímabil samfleytt. Formaður LMFÍ er jafnframt formaður kjararáðs.

5.3. Varaformaður gegnir skyldum formanns í forföllum hans.

5.4. Stjórnin skipuleggur stjórnarfundi eftir þörfum hverju sinni og boðar formaður til þeirra. Fundir stjórnar eru lögmætir ef meirihluti stjórnarmanna er mættur og stjórnarmenn hafa verið boðaðir til fundar með lögmætum hætti.

5.5. Stjórn félagsins fylgir eftir lögum þess og samþykktum. Stjórn félagsins fer með æðsta vald í öllum málefnum félagsins á milli aðalfunda.

5.6. Stjórn skal hafa yfirsýn yfir daglegan rekstur félagsins og ber ábyrgð á öllum framkvæmdum sem gerðar eru í nafni þess.

5.7. Stjórn fylgist með störfum deilda og/eða nefnda sem starfræktar eru innan félagsins.

5.8. Stjórn félagsins, skipuleggur fræðslufundi, námskeið og ráðstefnur á vegum félagsins.

5.9. Stjórn tekur ákvörðun um ráðningar starfsmanna til félagsins og semur um ráðningakjör við þá.

5.10, Stjórn er heimilt að ráða framkvæmdastjóra og fela honum daglegan rekstur skrifstofu félagsins. Heimilt er að ráða formann félagsins sem framkvæmdastjóra.

5.11. Hlutverk stjórnar er að framfylgja markmiðum LMFÍ og vinna eftir lögum félagsins og stefnumótun sem sett hefur verið fram og samþykkt á aðalfundi.

5.12. Vantraust á stjórn LMFÍ eða formann félagsins má bera upp ef 1/3 kjarafélaga hafa skrifað undir áskorun þess efnis. Fundur skal þá boðaðar með sama hætti og aðalfundur og fundarefni tilgreint í fundarboði.

5.13. Fylgja skal fundarsköpum LMFÍ á öllum fundum félagsins sem fundarstjóri les í upphafi fundar hverju sinn.

6. Grein

ATKVÆÐAGREIÐSLA

6.1. Atkvæðisrétt á aðalfundi og félagsfundum hafa kjarafélagar sem eru skuldlausir við félagið. Skal stjórn hafa tiltæk gögn um félagsmenn sem ekki hafa gert upp sín félagsgjöld í upphafi fundar.

6.2. Allar kosningar eru bindandi og fari fram skriflega eða rafrænt séu fleiri en einn eru í framboði til embættis. Falli atkvæði jafnt skal kosið að nýju og fáist þá eigi úrslit ræður hlutkesti. Atkvæði greidd á staðnum og atkvæði greidd með fjarfundabúnaði hafa sama vægi. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum nema annað sé tekið fram.

6.3. Kjörnefnd skal sjá um undirbúning og framkvæmd kosninga á aðalfundi.

6.4. Í ágreiningsmálum á stjórnarfundum ræður meirihluti stjórnar, ef hlutir falla jafnt þá ræður atkvæði formanns úrslitum. Stjórn er heimilt að láta fara fram rafræna kosningu um þau mál sem hún telur brýn og varða mikilvæga hagsmuni.

7. Grein

FÉLAGSFUNDIR

7.1. Félagsfund skal halda þegar stjórn þykir ástæða til eða ef minnst 10% félagsmanna óska þess skriflega og tilgreina fundarefni. Skal þá boðað til fundar með minnst viku fyrirvara. Ef nauðsyn krefur má þó boða félagsfund með 24 klukkustunda fyrirvara.

7.2. Stjórn félagsins tilnefni alþjóðafulltrúa sem ásamt formanni (eða staðgengli hans) sér um alþjóðlegt samstarf sem félagið kann að taka þátt í hverju sinni. Alþjóðafulltrúi og formaður skili greinargerð um erlent samstarf félagsins til stjórnar. Enn fremur geri þeir grein fyrir starfinu í Ljósmæðrablaðinu, vefsíðu félagsins eða á aðalfundi.

8. Grein

FJÁRMÁL

8.1. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningar félagsins, nefnda þess og sjóða skulu yfirfarnir af löggiltum endurskoðanda og tveimur skoðunarmönnum sem aðalfundur kýs úr röðum félagsmanna til eins árs í senn. Reikningar skulu vera komnir í hendur skoðunarmanna félagsins 14 dögum fyrir aðalfund til yfirlestrar og undirskriftar

8.1. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningar félagsins, nefnda þess og sjóða skulu yfirfarnir af löggiltum endurskoðanda og tveimur skoðunarmönnum sem aðalfundur kýs úr röðum félagsmanna til eins árs í senn. Gögn skulu vera aðgengileg skoðunarmönnum minnst tveimur vikur fyrir aðalfund.

8.2. Heildarendurskoðun reikninga félagsins skal fara fram á fimm ára fresti.

9. Grein

NEFNDIR OG RÁÐ

9.1. Innan LMFÍ skulu starfa eftirfarandi nefndir

9.1.1. Kjararáð. Formaður félagsins er formaður kjararáðs. Auk hans eiga varaformaður og aðaltrúnaðarmaður sæti í kjararáði ásamt öðrum stjórnarmeðlimum og trúnaðarmönnum eftir þörfum.

9.1.2. Ritnefnd, sbr. handbók

9.1.3. Kjörnefnd, sbr. handbók

9.1.4. Sjóðanefnd, sbr. handbók

9.1.5 Siðanefnd, sbr. reglur siðanefndar

9.2. Heimilt er að koma á fót nefndum um einstök málefni eða málaflokka ef stjórn metur svo. Sama gildir um samtök og ráð sem LMFÍ er heimilað að tilnefna fulltrúa í.

9.3. Nefndir innan LMFÍ starfa á grundvelli laga félagsins. Nefndum er óheimilt að stofna til fjárhagsskuldbindinga nema með heimild stjórnar LMFÍ.

10.Grein

DEILDIR

10.1. Heimilt er að stofna deildir innan félagsins ef stjórn metur svo. Æskilegt er að deildirnar sendi einn fulltrúa á aðalfund er greini frá starfsemi sinnar deildar eða sendi greinargerð til stjórnar eigi síðar en tveim vikum fyrir aðalfund. Sé það ekki gert er litið svo á að starfsemi deildar liggi niðri.

10.2. Deildir félagsins geta sótt um fjárframlög frá félaginu til starfsemi sinnar.

10.3. Deildir innan LMFÍ starfa á grundvelli laga félagsins. Deildum er óheimilt að stofna til fjárhagsskuldbindinga nema með heimild stjórnar LMFÍ

11. Grein

SIÐAMÁL

11.1 Siðareglur

LMFÍ setur sínu félagsfólki siðareglur. Stjórn félagsins skal hafa eftirlit með og stuðla að því að siðareglur og lög félagsins skuli höfð í heiðri. Stjórn félagsins skal vera ljósmæðrum til ráðuneytis um siðareglur ljósmæðra og samskipti ljósmæðra innbyrðis, sem og um meint brot á siðareglum ljósmæðra og lögum félagsins.

11.2 Meðferð ágreiningsmála

Komi upp ágreiningur á milli ljósmæðra innbyrðis, skal stjórn félagsins leita sátta. Takist ekki sættir, skal stjórn félagsins úrskurða í málinu.

Stjórn félagsins úrskurðar í þeim málum sem til hennar er beint og ekki vísað til meðferðar og úrskurðar Siðanefndar. Skal stjórn afgreiða þau mál með eins skjótum hætti og kostur er hverju sinni.

11.3 Siðanefnd LMFÍ

Á vegum félagsins starfar Siðanefnd og er hlutverk hennar að fjalla um siðamál sem til hennar er vísað. Stjórn Siðanefndar getur vísað frá sér erindum sé það mat hennar að mál beri að leysa á öðrum vettvangi.

11.4 Mál sem siðanefnd tekur til meðferðar.

Siðanefnd LMFÍ tekur til umfjöllunar og úrskurðar, eftir því sem við á :

1. Erindi sem stjórn LMFÍ kann að vísa til nefndarinnar vegna ágreinings skv. gr. 11.2 (meðferð ágreiningsmála) og um kvartanir vegna háttsemi, sem kann að stríða gegn lögum LMFÍ eða siðareglum LMFÍ enda hafi stjórn LMFÍ ekki áður fjallað um málið eða úrskurðað í því.

2. Erindi og umkvartanir sem vísað er til úrlausnar nefndarinnar, frá skjólstæðingum ljósmæðra eða aðstandendum þeirra, frá heilbrigðisstofnunum eða heilbrigðisyfirvöldum eða öðrum hliðstæðum aðilum eru vegna meintra brota gegn siðareglum LMFÍ.

Úrskurði stjórnar LMFÍ má skjóta til Siðanefndar hafi Siðnefnd ekki áður úrskurðað í málinu. Siðanefnd er heimilt að vísa frá erindum sé það mat hennar að mál beri að leysa á öðrum vettvangi.

11.5 Skipan siðanefndar

Í siðanefnd sitja tvær ljósmæður, sem kosnar eru á aðalfundi LMFÍ til tveggja ára í senn, sitt hvort árið.

Þriðji aðili sem er jafnfram kosinn á aðalfundi LMFÍ til tveggja ára í senn, skal vera löglærður og uppfylla skilyrði til þess að mega starfa sem dómari. Hann skal vera formaður nefndarinnar.

Varamenn skulu vera jafnmargir og kosnir á sama hátt og til jafns langs tíma.

Nefndin hefur aðsetur hjá Ljósmæðrafélagi Íslands sem greiðir kostnað af störfum hennar og sér henni fyrir nauðsynlegri aðstöðu. Formaður LMFÍ eða önnur ljósmóðir úr stjórn er ritari nefndarinnar.

11.6 Hæfi nefndarmanna

Um hæfi nefndarmanna til þátttöku í meðferð einstaks máls fer eftir reglum II. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993, eftir því sem við á.

11.7 Móttaka erinda til siðanefndar

Erindi til siðanefndar LMFÍ skal sent á formann LMFÍ, sem kemur þeim á framfæri við formann Siðanefndar. Skulu erindi til nefndarinnar vera skrifleg. Erindi skal ekki vera eldra en þriggja ára.

11.8 Úrskurðir siðanefndar

Fullskipuð nefnd kveður upp úrskurði. Siðanefnd mælir fyrir um það í úrskurði hvort forsendur og úrskurðarorð úrskurðar skuli birt í Ljósmæðrablaðinu og hvort nafnaleynd skuli þá gætt eða ekki. Úrskurðir Siðanefndar sæta hvorki kæru né málskoti innan LMFÍ. Málsaðilar geta óskað eftir því að mál verði tekið fyrir að nýju hjá Siðanefnd ef þeir hafa fengið upplýsingar eða heimildir eftir að úrskurður var kveðinn upp sem þeir telja að myndu breyta þeim úrskurði ef þær hefðu legið fyrir áður en hann var kveðinn upp. Siðanefnd úrskurðar, hvort þessar nýju upplýsingar eða heimildir séu þess eðlis, að á þeim megi byggja við upptöku málsins.

Að öðru leyti gilda meginreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um meðferð mála fyrir nefndinni.

11.9 Úrræði siðanefndar

Komist siðanefnd að þeirri niðurstöðu að ljósmóðir hafi brotið gegn Siðareglum LMFÍ eða lögum LMFÍ getur nefndin fundið að háttsemi ljósmóðurinnar eða veitt henni formlega áminningu.

Sé um ítrekað brot eða stórfellt brot að ræða, er Siðanefnd LMFÍ heimilt að mæla fyrir um að niðurstaða nefndarinnar skuli kynnt Landlækni.

12. Grein

TRÚNAÐARMENN

12.1 Stjórn skal beita sér fyrir því að trúnaðarmenn séu kjörnir á tveggja ára fresti sbr. V. kafla laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, I. kafla laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eða því sem samið kann að vera um í kjarasamningum.

12.2 Í trúnaðarmannaráði skulu eiga sæti allir trúnaðarmenn LMFÍ. Hlutverk trúnaðarmannaráðs er að undirbúa kröfugerð, kjarasamninga og stofnanasamninga og vera stjórn til ráðgjafar um ýmis mál.

13. Grein

ÚTGÁFA

13.1 Allt efni sem birtist á prenti í nafni félagsins, í rafrænum miðlum, ljósvakamiðlum, á ráðstefnum o.fl. auk minjagripa telst vera útgáfa félagsins. Stjórn sér um og ber ábyrgð á útgáfu efnis í nafni félagsins.

13.2 Félagið á og rekur vefsíðuna ljosmodir.is sem er upplýsingavefur fyrirverðandi foreldra.

13.3 LMFÍ gefur út Ljósmæðrablaðið og greiðir kostnað af því. Skal senda blaðið öllum félagsmönnum og er áskriftarverð þess innifalið í félagsgjaldi. Stjórn LMFÍ ræður ritstjóra sem sér um útgáfu Ljósmæðrablaðsins í samvinnu við ritnefnd. Ritnefnd skal kjósa á aðalfundi félagsins.

13.4 Merki LMFÍ er skráð í vörumerkjaskrá og er félagið eigandi þess. Notkun á merkinu er háð leyfi stjórnar.

14. Grein

LAGABREYTINGAR

14.1 Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og skulu tillögur um breytingar hafa borist með aðalfundarboði tveim vikum áður og þannig kynntar félögum áður en til fundar kemur. Lagabreytingar eru því aðeins lögmætar að 2/3 fundarmanna á greiði þeim atkvæði.

14.2 Lög þessi öðlast gildi á aðalfundi Ljósmæðrafélags Íslands 3. apríl 2025. Um leið verða lög Ljósmæðrafélags Íslands frá 24. mars 2021 úr gildi numin.