Beint í efni

Félagslífið vorið 2025

Höfundur: Unnur Berglind Friðriksdóttir

Það er alltaf gaman að skrifa fréttir um félagslífið hjá Ljósmæðrafélagi Íslands og rifja upp það sem við ljós­mæður höfum verið að gera undanfarna mánuði.

Í janúar var haldið nálastungunámskeið þar sem Guðlaug María, sérfræðingur okkar ljósmæðra í nálastungum var með tvö námskeið, eitt í Reykjavík og annað á Akureyri. Færri komust að en vildu á námskeiðin og líklegt að stutt bið verði í næstu grunn nám­skeið. Þá er sömuleiðis kominn tími til að halda upp­ rifjunar-/endurmenntunar-námskeið fyrir þær ljós­mæður sem hafa áður lært nálastungur.

Í upphafi árs var kjarakönnun lögð fyrir félagskonur Ljósmæðrafélagsins svipaða þeirri frá fyrra ári. Því miður virðist staðan óbreytt hjá ljósmæðrum: starfs­ aðstæður eru ekki góðar og hið daglega álag of mikið. Niður­ stöðurnar höfum við kynnt fyrir nýjum heil­brigðis­ ráðherra, sem mun vonandi beita sér fyrir úrbótum. Ljós­mæðra­félagið hefur ákveðið að taka þátt í stórri og ítarlegri norrænni rannsókn á starfsaðstæðum og líðan ljós­mæðra í sam­starfi við Malin Hanson, sem er prófessor í ljós­móður­fræði við Háskólann í Gauta­borg. Malin Hanson var einn af lykil­ fyrir­lesurum á norrænu ráð­stefnunni sem nýlega fór fram í Kaup­manna­höfn þar sem hún flutti áhrifaríkan fyrir­lestur undir yfir­skriftinni Faglegt hugrekki í ljósmóðurfræði. Í fyrir­ lestrinum fjallaði Malin um stöðu ljós­mæðra í fortíð, nútíð og framtíð. Hún kynnti sömuleiðis hluta af niður­stöðum þessarar rann­sóknar sem nú þegar hefur verið fram­kvæmd í Svíþjóð, en þar hefur verið við­varandi ljós­mæðra­skortur undanfarin ár. Niður­ stöðurnar voru sláandi, en til að mynda þá er ein af hverjum fjórum ljós­mæðrum þar í landi sem hættir að starfa við ljós­móður­ störf, einungis helmingur vinnur fulla vinnu, veikinda­tíðni er há og almennt er mjög mikið álag í ljós­móður­starfinu. Lilja Þórunn Þorgeirs­dóttir ljós­móðir við Háskólann í Borås og Berglind Hálfdáns­dóttir ljósmóðir við Háskóla Íslands verða tengi­liðir okkar í þessari mikil­vægu rann­sókn. Við hjá Ljós­mæðra­félagi Íslands bíðum spenntar eftir því að geta lagt þessa rann­sókn fyrir ljós­mæður á Íslandi og hvetjum ykkur allar til þess að gefa ykkur tíma til þess að taka þátt.

Í febrúar síðastliðnum var stofnuð fagdeild sérfræði­ ljósmæðra innan félagsins og var Guðlaug María Sigurðardóttir kosin formaður hennar. Nú eru 19 ljós­mæður sem hafa fengið sér­fræði­leyfi hjá Embætti land­læknis. Fleiri ljós­mæður bíða þess að leyfi þeirra verði sam­þykkt, en bæði hafa Land­spítalinn og Heilsugæsla Höfuð­borgar­svæðisins boðið upp á náms­leiðir fyrir ljós­mæður til að öðlast hæfni til að sækja um sér­fræði­leyfi hjá Em­bætti land­læknis. Það verður áhuga­vert að fylgjast með starfi þessarar fag­deildar til að styrkja okkur sem sér­fræðinga í mis­munandi undir­greinum ljós­móður­fræðinnar. Félag heimaþjónustu ljós­mæðra heldur áfram sínu öfluga starfi, en formaður félags heima­þjónustu­ljósmæðra er nú Guðrún Hulda Gunnars­ dóttir. Fyrir­hugaður er fundur við Sjúkra­tryggingar Íslands varðandi endur­skoðun á samningi. Ljósurnar, félagljós­mæðra 60 ára og eldri, hittast reglu­lega og fóru í sína árlegu óvissu­ferð í júní, en þeirri ferð verða gerð betri skil annars staðar í blaðinu.

Aðalfundur Ljósmæðrafélags Íslands var haldinn þann 3. apríl síðastliðinn. Á þessum fundi var lögum félagsins breytt, þar sem kafli um sérstaka Siðanefnd hjá félaginu var samþykktur. Það er mikilvægt að við eins og aðrar heilbrigðisstéttir höfum okkar eigin siða­nefnd, þar sem hægt er að taka til skoðunar fagleg málefni.

Á alþjóðadegi ljósmæðra þann 5. maí héldum við málþing í Þjóðminjasafni Íslands í samstarfi við Félag þjóðfræðinga á Íslandi og Náms­ braut í þjóð­ fræði við Háskóla Íslands um með­ göngur, fæðingar og þjóðfræði, en Ólöf Ásta Ólafs­dóttir ljós­móðir skrifar um mál­þingið í blaðinu. Á málþinginu var ný spurningaskrá um barn­eignar­ferlið kynnt en hún var opnuð þann sama dag. Hana má nálgast á sarpur.is undir flipanum þjóð­hættir. Takið endilega þátt í þessari könnun og hvetjið fólk í kringum ykkur til að gera slíkt hið sama fyrir komandi kynslóðir.

Ljósmæðrafélagið hélt svo okkar Ljósmæðradag þann 9.maí í Nauthól þar sem yfir 70 ljósmæður komu saman og ræddu mikilvægi skráningar út frá ólíkum sjónarhornum, en fræðsludeginum verða gerð betri skil í blaðinu.

Íslenski ljósmæðra­hópurinn í Kaupmannahöfn.

Þann 30. maí kynntu okkar nýjustu ljósmæður meistaraverkefni sín. Alltaf jafn skemmtilegur og áhuga­verður dagur, glæsileg umgjörð og fjöl­breytt rannsóknarefni kynnt sem gefur til kynna metnaðarfulla námsbraut. Í blaðinu er nánari umfjöllun um meistaraverkefnin.

Í júní fengum við Sigurð Sigurbjörnsson frá Lífeyrisframtíðinni til að fara yfir lífeyrismál með okkur en það er mikilvægt kjaramál að huga snemma að þeim leiðum sem eru okkur færar í þeim málum. Við viljum jú allar hámarka okkar tekjur eftir starfs­ lok. Kynningin var haldin hér í Borgartúni 6, en einnig streymt á zoom, auk þess sem kynningin var tekin upp fyrir þær sem ekki komust.

Samstarfið innan BHM hefur verið með svipuðum hætti og síðustu ár, en óneitanlega er mikil breyting á daglegum samskiptum þegar flest aðildar­félaganna hafa flutt úr Borgartúni 6. Þá höfum við ásamt for­mönnum Félags íslenskra hjúkrunar­fræðinga, Lækna­félags Íslands, Lyfja­fræðinga­félags Íslands og Sjúkra­liða­félags Íslands hist reglu­lega, en það hefur verið mikil­vægt fyrir okkur allar að eiga þetta sam­starf þar sem við getum deilt okkar þekkingu og reynslu, enda eigum við mörg sameigin­leg hagsmunamál.

Erlent samstarf hefur verið með hefðbundnum hætti. Fundur formanna NJF var haldinn dagana fyrir NJF-ráðstefnuna í Kaupmannahöfn, en sér­ pistill er um það í blaðinu. Á NJF ráðstefnunni sem haldin var á Tivolí hótelinu í Kaupmannahöfn 26.–28. maí síðast­ liðinn voru um 1000 ljósmæður saman­ komnar frá fjölda landa. 74 ljósmæður komu frá Íslandi og vorum við þar með þriðja fjöl­mennasta landið. Átta íslenskar ljós­ mæður voru með eitt eða fleiri erindi og voru tólf vegg­spjöld frá Íslandi. Þær ljós­mæður sem héldu erindi voru Berglind Hálfdáns­ dóttir, Elsa Ruth Gylfa­dóttir, Edythe Mangindin, Embla Guðmundsdóttir, Emma Marie Swift, Hilda Guðný Svavars­dóttir, Hilda Friðfinns­dóttir og Sigfríður Inga Karls­dóttir. Við íslenskar ljós­ mæður getum sannar­ lega verið stoltar af okkar framlagi.

Það hefur verið mikil umræða bæði á fundum EMA og ICM vegna breytinga á Evrópu­ reglu­ gerðinni um menntun ljósmæðra og töluverð vinna farið í að móta sameiginlegar tillögur að breytingum, en EMA og ICM hafa verið í náinni sam­ vinnu vegna þessa. Aðal­fundur EMA verður haldinn í Riga á Eistlandi í haust, en það hafa verið haldnir tveir raf­rænir fundir í vetur, vegna þeirra breytinga sem fyrir­hugaðar eru á Evrópu­reglu­gerðinni um ljós­mæður. Menntunar­ ráðstefnan verður síðan haldin á Möltu í október. ICM hefur ein­göngu haldið raf­rænafundi í ár sem hefur verið mjög kær­komið enda mun auð­veldara fyrir aðildar­löndin að hafa full­ trúa á fundunum þegar þeir eru raf­rænir, bæði þegar Evrópu­ deildin hefur fundað sem og þegar alþjóð­legir fundir hafa verið haldnir. Rafrænar atkvæða­greiðslur hafa síðan verið haldnar eftir á. Þess má geta að á síðasta Evrópu­fundinum kynnti Berglind Hálfdánsdóttir rann­sóknir sínar og sam­ starfsfélaga um „free birth“ fæðingar hér á landi. Næsti stað­fundur ICM verður í Lissabon í júni árið 2026 í tengslum við næstu ICM ráðstefnu.

Það eru spennandi tímar framundan hjá Ljósmæðrafélaginu, þótt við séum enn í óvissu varðandi húsnæðismál og stefnan er tekin á blómlegt starf næsta vetur. Strax í haust verður námskeiðið Þegar fjöl­skylda fæðist haldið og áfram munum við nota tæknina og halda rafræna fræðslufundi.

Vinna er hafin við að uppfæra smáforrit félagsins Fylgja og við hlökkum mikið til þegar það verður komið í fulla virkni aftur. Hægt er að sækja for­ritið bæði fyrir Apple og Android síma og nálgast aðgangs­orðið hjá félaginu. Síða félagsins ljosmodir.is var upp­ færð af Hug­smiðjunni með góðri aðstoð Gauta Skúla­sonar hjá Visku og tókst sú vinna frábær­ lega vel.

Við erum gríðar­ lega stolt af því að ljosmodir.is fékk íslensku vef­ verð­ launin í flokki sam­ félags­ verkefna. Að lokum minnum við á nýja heimasíðu Ljósmæðrafélagsins sem loksins er komin í loftið. Allar ábendingar um efni sem á heima þar inni eru vel þegnar, því þetta er jú heimasíða okkar allra.

Formenn ljósmæðrafélaga Norðurlandanna, hver við sinn þjóðfána.
Verðlaunum fyrir vefsíðuna veitt viðtaka.